Skip to content
← All news

Nýir viðtalstímar SFHR - greiðari leið að stuðningi og hagsmunagæslu

SFHR hefur komið á fót viðtalstímum þar sem nemendur Háskólans í Reykjavík geta bókað samtal við fulltrúa félagsins, fengið aðstoð og komið ábendingum á framfæri. Þetta er heillaskref í hagsmunagæslu nemenda og liður í að gera þjónustu félagsins sýnilegri, aðgengilegri og persónulegri.

Viðtalstímarnir skapa skýra leið fyrir nemendur til að leita stuðnings, hvort sem málið snýr að náminu, réttindum á vinnumarkaði, námslánum eða skiptinámi. Jafnframt gefa þeir SFHR betri innsýn í þau verkefni og áskoranir sem nemendur standa frammi fyrir og styrkja þannig grundvöll félagsins til að fylgja málum eftir.

Við hverja er hægt að ræða?

  • Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR: Um málefni skólans, námið, félagslífið og hugmyndir að því sem betur mætti fara.
  • Auður Bjarnadóttir, hagsmuna- og gæðastjóri: Um kennslumál, réttindi nemenda og persónuleg trúnaðarmál.
  • Orri Thor Eggertsson, varaforseti og menntasjóðsfulltrúi: Um námslán og önnur mál tengd Menntasjóði námsmanna.
  • Brynja Lóa Bjarnþórsdóttir, kjara- og atvinnulífsfulltrúi: Um kjara- og réttindamál, launaseðla, ferilskrár og fyrstu skrefin á vinnumarkaði.
  • Steinar Petersen, alþjóðafulltrúi: Um skiptinám og önnur alþjóðamál, meðal annars þegar nemendur þurfa stuðning í samskiptum við deildir eða alþjóðaskrifstofu.

Bókaðu tíma sem hentar þér

Bókanir fara fram rafrænt. Nemendur velja viðeigandi þjónustu á bókunarsíðunni og skoða þar lausar dagsetningar og tímasetningar.

Það þarf ekki að bíða þar til vandamál er orðið stórt til að leita til SFHR. Spurningar, ábendingar og hugmyndir eiga líka erindi í viðtalstíma. Með beinu samtali getum við unnið saman að betra háskólasamfélagi.

Bóka viðtalstíma hjá SFHR