Skip to content
← All news

Samningur um styrkveitingu HR til SFHR undirritaður

Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík og HR hafa undirritað nýjan samning sem styrkir grundvöll starfsemi SFHR og festir í sessi mikilvægt samstarf félagsins og skólans. Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR, og Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, undirrituðu samninginn fyrir hönd aðila.

Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR, og Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR

Samningurinn er í fyrsta sinn ótímabundinn og skapar þannig aukna festu í starfseminni. Fyrir SFHR skiptir stuðningurinn miklu við að sinna hagsmunagæslu, efla þjónustu við nemendur og standa að fjölbreyttu félagslífi. Hann styrkir jafnframt forsendur félagsins til að skipuleggja starfið til lengri tíma og fylgja mikilvægum verkefnum eftir.

Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR:

„Starf SFHR er bæði mikilvægt og margþætt. Þau gæta hagsmuna nemenda í stóru og smáu, eru ómissandi samstarfsfólk okkar sem stýrum HR og tengja nemendur vel saman í gegnum verkefni og viðburði hér í skólanum. Nú erum við í fyrsta sinn að gera ótímabundinn samning til að ýta enn frekar undir hið góða samstarf HR og SFHR. Mér finnst þetta tækifæri tilvalið til að þakka þessari og fyrri stjórnum SFHR fyrir samstarfið og fyrir allan tímann sem þau í SFHR leggja í að gera skólann okkar allra enn betri.“

Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR:

„Samningurinn staðfestir hið öfluga og mikilvæga samstarf sem ríkir milli SFHR og HR. Fyrir okkur skiptir miklu máli að eiga gott samtal við skólann og vinna saman að hagsmunum og upplifun nemenda. Við erum afar þakklát fyrir þann stuðning og það traust sem HR sýnir starfi félagsins og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.“

SFHR fagnar samningnum og því trausti sem hann endurspeglar. Með áframhaldandi samstarfi við HR mun félagið vinna að öflugri hagsmunagæslu, aðgengilegri þjónustu og lifandi háskólasamfélagi fyrir alla nemendur.

s