Gæti leigubremsa stjórnvalda hækkað leigu HR-inga?
Stjórnvöld vilja takmarka húsaleiguhækkanir með svokallaðri leigubremsu. Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík (SFHR) varar hins vegar við því að breytingarnar geti haft öfug áhrif og leitt til hærri leigu fyrir námsmenn í stúdentaíbúðum.

Hvað er leigubremsan?
Í dag getur húsaleiga verið tengd vísitölu neysluverðs, sem mælir breytingar á almennu verðlagi. Þegar verðlag hækkar, til dæmis vegna hækkana á matvöru og annarri neyslu, getur húsaleigan því líka hækkað. Í sumum leigusamningum gerist þetta mánaðarlega.
Samkvæmt frumvarpi stjórnvalda til breytinga á húsaleigulögum, svokallaðri leigubremsu, yrðu slíkar mánaðarlegar hækkanir bannaðar. Þess í stað þyrftu að líða að minnsta kosti 12 mánuðir á milli reglubundinna breytinga á húsaleigu.
Þá verður aðeins hægt að semja um að leigan breytist samkvæmt vísitölu neysluverðs, um fyrir fram ákveðna prósentu eða ákveðna krónutölu. Reglubundin hækkun má þó ekki vera meiri en hækkun vísitölu neysluverðs á sama tímabili.
Hvers vegna hefur SFHR áhyggjur?
Margir HR-ingar búa í stúdentaíbúðum hjá Byggingafélagi námsmanna (BN), sem er óhagnaðardrifið félag með það markmið að bjóða námsmönnum húsnæði á hagstæðum kjörum.
Í dag hafa félög á borð við BN sérstaka heimild til að semja um önnur leigukjör en almennt gilda samkvæmt húsaleigulögum. Frumvarpið myndi takmarka þessa heimild þannig að félögin þyrftu að fylgja sömu reglum um leigufjárhæð og breytingar á henni og aðrir leigusalar.
BN og aðrir rekstraraðilar stúdentaíbúða hafa bent á að ef mánaðarlegar vísitöluhækkanir verða bannaðar gætu þeir þurft að reikna áætlaða verðbólgu inn í leiguna strax í upphafi samnings. Það gæti leitt til hærri byrjunarleigu, sérstaklega fyrir námsmenn sem leigja í stuttan tíma.
SFHR telur því mikilvægt að tekið sé tillit til sérstöðu námsmanna, sem leigja jafnan í styttri tíma og flytja oftar en aðrir leigjendur, svo breytingarnar leiði ekki til óhagstæðari leigukjara.
Hvað vill SFHR?
SFHR leggst gegn því að undanþágan verði afnumin þegar kemur að reglum um leigufjárhæð stúdentaíbúða. Félagið vill að áfram verði hægt að semja um sérstök leigukjör fyrir námsmenn, svo lengi sem samningarnir eru skýrir, leigan sanngjörn og réttindi námsmanna tryggð.
SFHR hefur sent Alþingi formlega umsögn og óskað eftir því að tekið verði tillit til þessara sjónarmiða við afgreiðslu frumvarpsins. Fulltrúar SFHR í stjórn BN samþykktu jafnframt sambærilega umsögn frá BN og rekstraraðilum stúdentaíbúða við HÍ og HA.
Umsagnirnar má nálgast í heild sinni hér að neðan: