Bleik vika í HR til stuðnings bleiku slaufunni
Dagana 19.-23. október stóð SFHR fyrir Bleikri viku í Háskólanum í Reykjavík. Vikan sameinaði samveru, skemmtun og stuðning við mikilvægt málefni, en ágóði hennar rann til Bleiku slaufunnar hjá Krabbameinsfélaginu.

Á Bleika deginum, miðvikudaginn 21. október, voru nemendur og starfsfólk hvött til að mæta í bleiku og sýna samstöðu. Boðið var upp á vöfflur með bleikum rjóma og á fimmtudeginum gafst nemendum tækifæri til að snúa bleika lukkuhjólinu og vinna skemmtilega vinninga.
Vikunni lauk föstudaginn 23. október með Bleika HAX. Þar var bleika þemað allsráðandi og DJ Sakki sá um tónlistina þegar nemendur komu saman og fögnuðu lokum vikunnar.
SFHR þakkar öllum sem tóku þátt og lögðu málefninu lið. Saman lituðum við háskólalífið bleikt og studdum gott málefni!