III. kafli. Aðalfundur
4. gr.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík skal halda í lok vorannar ár hvert. Til hans skal boðað með löglegum hætti, hið minnsta tveimur vikum fyrir áætlaðan fundardag ella telst hann ólögmætur og skal dagskrá fundarins fylgja fundarboði. Allir félagsmenn Stúdentafélagsins eiga rétt á að sækja aðalfund. Forseti setur fundinn og skipar fundarstjóra sem stýrir umræðum. Á aðalfundi skulu fylgja fundarsköp sem stjórn hefur samþykkt.
Til þess að tillaga á aðalfundi hljóti samþykki þarf samþykki meirihluta fundarmanna, slíkt á þó ekki við um tillögur um breytingu á lögum félagsins sem fara eftir þessum lögum. Tillögur um efni sem er ekki á fundarboði skulu ekki teknar til afgreiðslu nema 2/3 hluti fundarmanna hafi samþykkt afgreiðslu slíkrar tillögu.
Á aðalfundi skulu kosnir 2 skoðunarmenn til þess að endurskoða reikninga félagsins. Skoðunarmenn skulu eigi vera í stjórn félagsins og mega ekki hafa haft beina aðkomu að fjármálum félagsins á því starfsári sem til skoðunar er. Skal slíkri endurskoðun lokið eigi síðar en 3 dögum eftir aðalfund. Skulu skoðunarmenn gera grein fyrir störfum sínum á aðalfundi undir liðnum „Fjármálastjóri skilar skýrslu um fjármál ársins.“
5. gr.
Fráfarandi varaforseti skrifar fundargerð aðalfundar.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
- i. Kjör fundarstjóra.
- ii. Forseti Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík fer yfir starf ársins.
- iii. Fjármálastjóri skilar skýrslu um fjármál ársins.
- iv. Lagabreytingar.
- v. Skýrsla kjörstjórnar um niðurstöður kosninga.
- vi. Stjórnarskipti.
- vii. Önnur mál.
IV. kafli. Stjórn
6. gr. Stjórn félagsins
Stjórn Stúdentafélagsins (hér eftir „stjórn“) skal skipuð sjö nemendum við Háskólann í Reykjavík. Stjórn félagsins skipa forseti, varaforseti, fjármálastjóri, samskiptastjóri, hagsmuna- og gæðastjóri, markaðsstjóri og nefndarsviðsstjóri.
7. gr. Forseti
Forseti Stúdentafélagsins er formaður stjórnar Stúdentafélagsins, stjórnar fundum og kemur fram fyrir hönd Stúdentafélagsins í samskiptum við aðila innan sem utan Háskólans í Reykjavík. Forseti hefur yfirumsjón með starfsemi á vegum félagsins og ber hann endanlega ábyrgð á málefnum þess. Forseti situr í framkvæmdastjórn Háskólans í Reykjavík og situr fundi Háskólaráðs. Að auki situr hann í fulltrúaráði Stúdentafélagsins ásamt varaforseta. Forseti er einnig fulltrúi félagsins í fulltrúastjórn Landsamtaka íslenskra stúdenta í að minnsta kosti eitt ár en getur kosið að sitja í tvö ár. Forseti fer með prókúru og ritar firma fyrir hönd félagsins. Forseti ber ábyrgð á gerð ársskýrslu sem skal leggja fram á aðalfundi ár hvert og birta á heimasíðu félagsins. Í fjarveru forseta sinnir varaforseti þessum störfum. Forseti hefur umsjón yfir fjármálum félagsins ásamt fjármálastjóra.
8. gr. Varaforseti
Varaforseti skal rita fundargerðir stjórnarfunda og sjá til þess að fundargerðir séu samþykktar af stjórn Stúdentafélagsins. Þar að auki sér varaforseti um helstu samskipti við fulltrúaráð Stúdentafélagsins. Í fjarveru forseta stjórnar varaforseti fundum stjórnar og kemur fram fyrir hönd Stúdentafélagsins í samskiptum við aðila innan sem utan Háskólans í Reykjavík. Ákveði fyrrum forseti að sitja einungis í eitt ár sem fulltrúi félagsins í fulltrúastjórn Landsamtaka íslenskra stúdenta ber varaforseta að sitja í hans stað eða finna annan fulltrúa.
9. gr. Fjármálastjóri
Fjármálastjóri hefur einn umsjón með fjárráðum félagsins. Fjármálastjóri útbýr fjárhagsáætlun Stúdentafélagsins og leggur hana fyrir stjórn til samþykktar fyrir lok september mánaðar. Ársuppgjör skal vera aðgengilegt félagsmönnum þremur dögum fyrir aðalfund hið minnsta. Fjármálastjóri hefur prókúruumboð.
10. gr. Hagsmuna- og gæðastjóri
Hagsmuna- og gæðastjóri skal vinna að hagsmunamálum nemenda, ásamt gæðamálum náms við Háskólann í Reykjavík og hafa frumkvæði af úrbótum hverju sinni, hvort sem það er í samvinnu við kennslusvið eða einstaka deild innan háskólans. Þá skal hagsmuna- og gæðastjóri vera öllum nemendum háskólans innan handar sem og hagsmunafulltrúum aðildarfélaganna. Auk þess er hann tengiliður stjórnar við menntasjóðsfulltrúa félagsins sem situr í stjórn Menntasjóðs námsmanna (hér eftir „MSNM“). Hagsmuna- og gæðastjóri ber þar að auki ábyrgð á endurskoðun laga Stúdentafélagsins þegar þörf er á. Hagsmuna- og gæðastjóri situr í siðanefnd Háskólans í Reykjavík.
11. gr. Samskiptastjóri
Samskiptastjóri ber ábyrgð á og hefur yfirumsjón með öllum útgáfumálum félagsins. Samskiptastjóri hefur umsjón yfir svörun aðsendra bréfa, heimasíðu félagsins og öllum samfélagsmiðlum félagsins. Samskiptastjóri skal vinna náið með upplýsingafulltrúum nemendafélaganna eða sambærilegu embætti til þess að tryggja gott upplýsingaflæði svo hægt sé að upplýsa nemendur sem best hverju sinni.
12. gr. Markaðsstjóri
Markaðsstjóri skal sjá til þess að samningum og samstörfum við önnur fyrirtæki sé fylgt eftir, bæði af hálfu SFHR og fyrirtækjanna. Markaðsstjóri skal vera í skilvirkum samskiptum við samstarfsaðila. Markaðsstjóri hefur auk þess umsjón með framleiðslu nemendaskírteina í byrjun skólaárs og hefur samband við fyrirtæki til þess að safna afsláttum fyrir nemendaskírteini. Markaðsstjóri vinnur í nánu sambandi með fjármálastjóra varðandi skipulag. Markaðsstjóri er formaður markaðsnefndar SFHR.
13. gr. Nefndarsviðsstjóri
Nefndarsviðsstjóri hefur það hlutverk að hafa yfirumsjón yfir þeim nefndum sem starfa innan SFHR hverju sinni og sjá til þess að þær séu virkar í starfi og starfi undir gildum SFHR. Nefndir eru auglýstar í byrjun haustannar. Ef nefndir eru ekki fullmannaðar sér nefndarsviðsstjóri um að auglýsa lausar stöður í byrjun skólaárs og tekur viðtal við umsækjendur í samráði við þá sem sitja í nefndum. Nefndarsviðsstjóri sér um að halda skipulagi á starfsemi nefndanna og upplýsa stjórn SFHR reglulega um gang mála í starfsemi þeirra. Nefndarsviðsstjóri aðstoðar nefndir við að halda viðburði og safna styrkjum.
14. gr. Fulltrúi erlendra nemenda
Fulltrúi erlendra nemenda er tengiliður SFHR við erlenda nemendur og skiptinema við Háskólann í Reykjavík. Fulltrúinn er tilnefndur af varaforseta og skipaður af stjórn eftir viðtöl. Varaforseti skal leitast eftir því að staðan sé mönnuð á bæði haust- og vorönn. Fulltrúi erlendra nema skal sitja í alþjóðanefnd SFHR.
15. gr. Aðrir fulltrúar
Stjórn er heimilt að skipa aðra fulltrúa til að starfa sem sérfræðingar í ákveðnum málaflokkum. Stjórn skal útfæra hlutverk, skyldur, réttindi og þóknanir þessara fulltrúa nánar með reglugerðum.
16. gr.
Til að stjórnarfundur sé ályktunarbær þarf meirihluti stjórnar að vera viðstaddur. Til þess að ákvarðanir stjórnar séu bindandi og lögmætar þarf meirihluta samþykki ályktunarbærs stjórnarfundar að vera til staðar og skal sérstakt tillit tekið til skoðunar forseta SFHR.
17. gr.
Stjórn stúdentafélagsins skal skipa einn stjórnarmeðlim í námsráð Háskólans í Reykjavík. Viðkomandi skal hins vegar ekki vera forseti félagsins.
18. gr.
Vilji stjórnarmaður víkja sæti skal hann tilkynna stjórn SFHR það skriflega a.m.k. tveimur vikum áður en hann hyggst víkja sæti. Skal viðkomandi nýta þessar tvær vikur til þess að ganga frá þeim málum sem viðkoma SFHR og hann hefur með höndum.
19. gr.
Ef ⅔ hlutar stjórnar Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík samþykkir að víkja öðrum stjórnarmanni úr sæti Stúdentafélagsins, gildir sú ákvörðun að fyrir liggi góð og málefnaleg ástæða, svo sem ef stjórnarmaður sinnir ekki störfum sínum eða svarar ekki erindum stjórnar til lengri tíma. Stjórnarmaður sem víkur sæti skal ganga frá sínum málum í samræmi við ákvæði 18. gr. Stjórnarmaður sá sem vantrausttillögu er beint að skal ekki hafa kosningarétt þegar kosið er um áframhaldandi störf stjórnarmannsins sem kosið er um. Stjórn skal hafa samráð við Rektor og lögfræðing skólans og geta leitað til þeirra til þess að útkljá málið. Félagsmenn geta lagt til vantrauststillögu á hönd stjórnarmeðlims SFHR. Skuli þeir hafa að lágmarki undirskriftir frá 10% félagsmanna og verður þá haldinn félagsfundur. Á þeim félagsfundi yrði kosið endanlega um vantrauststillöguna og um hvort víkja eigi stjórnarmeðlim úr embætti.
20. gr.
Komi til þess að stjórnarmaður víki sæti skal stjórn skipa annan í hans stað eigi síðar en tveimur vikum síðar. Auglýst skal tryggilega meðal félagsmanna SFHR eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í starfi stjórnar, eigi síðar en viku eftir að stjórnarmaður víkur sæti, og skal stjórn skipa einn af þeim aðilum sem lýsa áhuga sínum til að starfa í stjórn SFHR.
21. gr.
Ef ⅔ hlutar stjórnar aðildarfélags lýsir vantrausti á annan stjórnarmeðlim innan sama félags skal fyrst hafa samband við forseta og hagsmuna- og gæðastjóra og boða þau á fund. Fulltrúar SFHR munu stýra fundi í framhaldi af því máli. Vantrausti skal fylgja góð og málefnaleg ástæða. Stjórnarmaður sem víkur sæti skal ganga frá sínum málum í samræmi við ákvæði 18. gr.
22. gr.
Forseti SFHR, í samráði við stjórnina, skal skipa einn nýjan stjórnarmeðlim Byggingarfélags námsmanna (hér eftir „BN“) að minnsta kosti 2 vikum fyrir aðalfund BN. Sá aðili þarf ekki að vera stjórnarmeðlimur SFHR. Stjórnarseta skal vera í tvö ár. Þeir tveir aðilar sem gegna hlutverki varafulltrúa BN skulu vera stjórnameðlimir úr SFHR.
VI. kafli. Aðildarfélög
24. gr.
Félag nemenda skal starfa innan hverrar akademískar deildar Háskólans í Reykjavík og skulu þau félög njóta aðildar að SFHR. Nemendum annarra deilda er heimilt að stofna sambærileg félög.
25. gr.
Aðildarfélög skulu sinna hagsmunagæslu fyrir alla nemendur innan sinnar deildar. Félögin skulu vinna að bættu félagslífi og sterkri hagsmunabaráttu innan sinnar deildar.
26. gr.
Í því tilfelli að lög eða siðareglur aðildarfélaga skarist á við lög eða siðareglur SFHR gilda þau síðarnefndu.
27. gr.
Allar lagabreytingar sem varða aðildarfélög SFHR skulu vera tekin til umræðu á fundi fulltrúaráðs SFHR fyrir aðal- eða lagabreytingafund.
28. gr.
Stjórn SFHR eða einstakir stjórnarmeðlimir geta lagt fram reglugerðir eða verklags- og starfsreglur sem varða aðildarfélög skarist þær ekki við lög SFHR og séu þær samþykktar af meirihluta fulltrúaráðs.
29. gr.
Aðildarfélög skulu starfa eftir gildum SFHR.
30. gr.
Aðildarfélög skulu skila ársreikningi til fjármálastjóra SFHR eigi síðar en viku fyrir aðalfund SFHR.
31. gr.
Aðildarfélög SFHR skulu halda aðalfund. Eftir aðalfund skulu aðildarfélög skila aðalfundargerð, félagsmannaskrá, lögum, upplýsingum um breytingar á stjórn og ársskýrslu til SFHR. Stjórn SFHR er heimilt að senda áheyrnarfulltrúa á aðalfundi aðildarfélaga.
VIII. kafli. Hagsmunaráð
35. gr.
Hagsmunaráð Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík skipa hagsmunafulltrúar aðildarfélaga SFHR. Hagsmuna- og gæðastjóri SFHR sinnir formennsku og leiðir störf ráðsins. Ef enginn innan stjórnar tiltekins aðildarfélags sinnir hlutverki hagsmunafulltrúa skal stjórn aðildarfélagsins skipa hagsmunafulltrúa í ráðið innan stjórnar sinnar. Sá aðili skal ekki vera formaður aðildarfélagsins, nema í undantekningartilfellum samþykkt af hagsmuna- og gæðastjóra SFHR.
36. gr.
Hagsmuna- og gæðastjóra er heimilt að skipa aðra meðlimi í nefndina, á borð við fulltrúa SFHR á sviðum jafnréttis-, menntasjóðs- eða byggingarfélagsmála, fastafulltrúa SFHR í hagsmunaráði, fulltrúa stúdenta í ýmsum stjórnum, ráðum og nefndum, trúnaðarmenn SFHR eða fulltrúa annarra hagsmunasamtaka innan HR.
37. gr.
Allir meðlimir skulu rita undir trúnaðaryfirlýsingu á fyrsta fundi þeirra. Hagsmuna- og gæðastjóri SFHR skal rita fundargerðir hagsmunaráðs. Fundargerðir hagsmunaráðs eru trúnaðarmál og eru fundir ráðsins lokaðir.
38. gr.
Hlutverk hagsmunaráðs SFHR er að efla samstarf aðildarfélaga SFHR í hagsmunamálum og vera stjórn SFHR innan handar við ákvarðanatöku í stærri málum. Ráðið hefur umsjón með kennslu- og gæðamálum innan HR, réttindamálum stúdenta, málefnum Menntasjóðs námsmanna og Háskólagarða HR, jafnréttismálum og öðrum hagsmunamálum.
39. gr.
Hagsmuna- og gæðastjóri SFHR boðar til fundar í byrjun skólaárs og getur boðað til fundar eftir þörfum og verkefnum með hagsmunaráði. Fundur hagsmunaráðs er ályktunarbær um þau málefni sem til umfjöllunar eru þegar ⅔ þeirra sem sæti eiga í hagsmunaráði eru mættir. Stjórn Stúdentafélagsins ber að hafa ályktanir fundar hagsmunaráðs að leiðarljósi við ákvarðanatöku í starfsemi sinni.
40. gr.
Lagabreytinganefnd skal starfa sem föst undirnefnd hagsmunaráðs. Hagsmuna- og gæðastjóri ásamt stjórn SFHR skal skipa nefndina til þess að sjá um endurskoðun á lögum félagsins fyrir aðalfund ár hvert. Skal nefndin skipuð 2 aðilum í það minnsta. Lagabreytinganefnd starfar í samvinnu við stjórn SFHR og skal skila frumvarpi með greinargerð sem lagt verður fyrir boðaðan aðalfund eða lagabreytingafund. Hagsmuna- og gæðastjóri SFHR situr í nefndinni og ber ábyrgð á samskiptum hennar við stjórn.
X. kafli. Kosningar
44. gr.
Kosningar í stjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík skulu fara fram fyrir aðalfund sbr. III. kafla. Boða skal til kosninga með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara, skal það auglýst með tryggilegum hætti, m.a. með tölvupósti til nemenda, ella teljast kosningarnar ólögmætar. Framboðsfresti lýkur tíu dögum fyrir aðalfund. Kosning skal standa yfir í þrjá sólarhringa. Kosning hefst á hádegi þremur sólarhringum fyrir auglýstan aðalfund og lýkur á hádegi á sama degi og aðalfundur fer fram.
45. gr.
Kosningarétt hafa allir félagsmenn SFHR. Kjörgengi hafa allir félagsmenn er hyggja á áframhaldandi nám við skólann. Framboð skulu vera skrifleg og undirrituð eða staðfest í gegnum skólanetfang frambjóðanda. Auglýsa skal eftir framboðum minnst þremur vikum fyrir aðalfund. Framboðsfresti lýkur tíu dögum fyrir aðalfund.
46. gr.
Stjórn Stúdentafélagsins skal skipa sjö aðila í kjörstjórn. Leitast skal við að gæta jafnræðis milli aðildarfélaga við skipan kjörstjórnar. Kjörstjórn skal sjálf kjósa sér formann, atkvæði formanns vegur tvöfalt ef atkvæði eru jöfn við afgreiðslu máls innan kjörstjórnar. Þeir sem sæti eiga í kjörstjórn hafa fyrirgert rétti sínum til framboðs í viðkomandi kosningum. Kjörstjórn skal skipuð hið minnsta fjórum vikum fyrir aðalfund. Kjörstjórn skal skipuleggja kosningar og sjá um framkvæmd þeirra í samvinnu við stjórn SFHR. Kjörstjórn skal gæta hlutleysis og er hún bundin þagnarskyldu um framgang kosninga.
47. gr.
Kosningar skulu fara fram með rafrænum hætti og skal kjörstjórn sjá til þess að öllum kröfum um öryggi og skilvirkni sé fullnægt. Kosningar skulu vera leynilegar.
48. gr.
Ef frambjóðandi er einn í framboði þarf hann ⅔ hluta greiddra atkvæða til að hljóta kosningu. Ef ekki hefur hlotist lögleg kosning í öll embætti, skal auglýsa eftir framboðum í laus embætti ekki síðar en 10 dögum eftir að niðurstöður kosninga liggja fyrir. Skal að öðru leyti fara um framkvæmd kosninganna eftir ákvæðum þessara laga.
49. gr.
Stjórn Stúdentafélagsins skal skipa þrjá aðila í kærunefnd vegna kosninga og tvo til vara, alls fimm aðila. Skal skipan kærunefndar lokið viku fyrir lok kosninga hið minnsta. Þeir sem sæti eiga í kærunefnd hafa fyrirgert rétti sínum til framboðs í viðkomandi kosningum. Við val á aðilum í kærunefnd skal leitast til við að skipa aðila sem koma úr mismunandi deildum og skal skipa einn aðila sem ekki er nemandi í Háskólanum í Reykjavík. Kærunefndin skal a.m.k. skipuð einum aðila sem lokið hefur grunnnámi í lögfræði. Nefndarmenn skulu gæta hlutleysis og eru bundnir þagnarskyldu um störf nefndarinnar umfram það sem gert hefur verið opinbert. Komi til þess að vafi leikur á hæfi einstakra nefndarmanna skal kærunefnd öll, þ.m.t. varamenn taka ákvörðun um hæfi viðkomandi. Skal nefndin hafa til hliðsjónar hæfisreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993 við þá ákvörðun.
50. gr.
Kærur vegna kosninga skulu berast kærunefnd skriflega eigi síðar en þremur virkum dögum eftir að kosningum lauk. Kærunefnd skal kveða upp úrskurð um efni kæru eigi síðar en viku eftir að kærufrestur rann út. Kærunefnd hefur endanlegt úrskurðarvald um efni kæru.
51. gr.
Komist kærunefnd að því að kosning, í heild eða að hluta til, hafi ekki verið framkvæmd samkvæmt ákvæðum laga þessara um framkvæmd kosninga, skal kjörstjórn boða til nýrra kosninga. Skulu framboð sem bárust vegna fyrri kosninga gild í slíkum kosningum. Skal boðað til nýrra kosninga eigi síðar en viku eftir að kærunefnd skilar úrskurði sínum. Að öðru leyti skulu sömu reglur gilda um framkvæmd aukakosninga og aðalkosninga.
52. gr.
Ef fjöldi atkvæða er jafnt milli frambjóðenda skal fráfarandi stjórn SFHR boða til nýrra kosninga um það embætti.