Sleppa í efni
Allar fréttir

Frábærlega heppnuð Góðgerðarvika SFHR

Söfnunin endaði í 1.220.000 krónum! Góðgerðarvika SFHR gekk frábærlega og söfnuðust 1.220.000 krónur fyrir Píeta samtökin.

Ragnhildur rektor og Bryndís aðstoðarrektor

Dagana 7.–11. september varð Háskólinn í Reykjavík vettvangur alls kyns uppákoma sem maður á ekki endilega von á að sjá í hefðbundnu skólastarfi. Nemendur eyddu sólarhring í tölvuleikjastreymi, gengu tvöfalt maraþon í Sólinni, ferðuðust hringinn í kringum landið, létu aflita á sér augabrúnir og tóku ákvarðanir um húðflúr sem verða líklega sýnileg öllu lengur en söfnunin sjálf.Undir öllu fjörinu bjó þó mikilvægur tilgangur. Markmið Góðgerðarviku SFHR var að sameina nemendur, starfsfólk, stjórnendur og samstarfsaðila HR í stuðningi við Píeta samtökin og það mikilvæga starf sem þar er unnið í sjálfsvígsforvörnum og stuðningi við einstaklinga í sjálfsvígshættu og aðstandendur þeirra.Þegar upp var staðið höfðu safnast rúmlega 1,2 milljón króna fyrir Píeta. Það er eftir minni bestu vitund söfnunarmet í Góðgerðarviku SFHR og sýnir svo ekki verður um villst hversu mikinn kraft er að finna í samfélaginu okkar þegar við stefnum öll í sömu átt.

Sameiginlegur sjóður og sameiginlegt markmið

Frá upphafi vildum við að vikan yrði verkefni alls háskólasamfélagsins en ekki eingöngu söfnun á vegum stjórnar SFHR. Þess vegna var settur upp sameiginlegur sjóður þar sem hver nýr áfangi virkjaði ákveðna áskorun.Fyrstu áskoranirnar voru fremur saklausar. Síðan fóru þær að verða stærri, erfiðari og, ef við eigum að segja alveg eins og er, töluvert skrýtnari.Tvíund hélt 24 klukkustunda streymi í Next Level Gaming. Kristín lét aflita á sér augabrúnir, Ingibjörg fékk gat í augabrúnina og Brynjólfur, Dagur og Maya skelltu sér í spraytan. Pragma stóð bæði fyrir HBT-hóptíma og eigin sólarhringsáskorun. Valli úr Atlas mætti í skólann sem „Hvar er Valli?“ og félagar í Technis hlupu hálft maraþon handjárnaðir saman.Markaðsráð lagði land undir fót og fór hringinn í kringum Ísland á innan við sólarhring. Ari, Atli og Steinar gengu tvöfalt maraþon inni í Sólinni og sýndu þar með að jafnvel kunnuglegustu hlutar skólans geta orðið að vettvangi fyrir eitthvað alveg nýtt.

Meira en áskoranir

Góðgerðarvikan snerist þó ekki aðeins um að fylgjast með fólki leggja ýmislegt á sig. Alla vikuna var líf í Sólinni og fjölbreytt dagskrá í boði.Boðið var upp á gular veitingar, partýbingó undir stjórn Antons Berg, fatauppboð með Frey Eyjólfssyni, skemmtiskokk í kringum HR og fjöltefli með Vigni Vatnar stórmeistara í skák. Nemendafélögin sjö tóku virkan þátt, dreifðu boðskapnum, skipulögðu áskoranir og hvöttu sitt fólk til þátttöku.Samfélagsmiðlar SFHR urðu síðan að eins konar beinni útsendingu frá vikunni. Þar mátti fylgjast með stöðu söfnunarinnar, sjá nýjar áskoranir virkjast og upplifa stemninguna þegar hvert markmiðið af öðru náðist. Eftir því sem leið á vikuna varð sífellt skýrara að verkefnið var orðið stærra en við höfðum þorað að vona.Það var ekki eitt stórt framlag sem skapaði niðurstöðuna. Hún varð til úr hundruðum smærri framlaga, þátttöku í viðburðum, deilingum á samfélagsmiðlum, samtölum á göngum skólans og fólki sem ákvað að leggja málefninu lið með þeim hætti sem það gat.Fjölmargir samstarfsaðilar lögðu einnig sitt af mörkum. Háskólinn í Reykjavík, Blue Car Rental og Orkuveitan styrktu söfnunina hvert um sig um 100.000 krónur og Samherji lagði til um 40.000 krónur. Sá stuðningur gaf söfnuninni mikilvægan byr í seglin og hjálpaði okkur að virkja fyrstu stóru áskoranirnar.

Lokahnykkur yfir Fossvoginn

Þótt sjálfri Góðgerðarvikunni lyki formlega á föstudegi beið ein eftirminnilegasta áskorunin aðeins lengur eftir réttu aðstæðunum.Þriðjudagsmorguninn 15. september syntu þeir Veigar Hrafn Sigþórsson og Ýmir Sölvason frá smábátahöfninni Kársnesmegin yfir Fossvoginn og komu að landi við Ylströndina í Nauthólsvík. Með þeim í för voru Ragnhildur Helgadóttir rektor og Bryndís Björk Ásgeirsdóttir aðstoðarrektor, sem fylgdu þeim á kajökum.Áskorunin vakti verðskuldaða athygli og RÚV mætti á staðinn. Veigar lýsti sundinu sem „ótrúlega köldu“ en Ýmir hafði öllu sólríkari sýn á verkefnið og sagði að það hefði verið „sól og sumar“ alla leið. Þeir félagar eru vanir að mæta á sundæfingar klukkan fimm á morgnana, þannig að tímasetningin virtist ekki trufla þá mikið. Fyrir okkur hin var nóg að horfa á úr fjarlægð og vera ánægð með að þurfa ekki sjálf að stökkva út í.Þessi lokahnykkur náði vel utan um anda vikunnar. Nemendur og stjórnendur voru bókstaflega saman á ferð, studdu hvert annað og lögðu eitthvað óvenjulegt á sig fyrir sameiginlegt málefni.

Takk allir sem að vikunni komu

Sérstakar þakkir eiga allir þeir sem samþykktu áskoranir áður en þeir vissu hversu hratt söfnunin myndi vaxa. Ég held að nokkur þeirra hafi gert ráð fyrir að markmiðin væru örugglega nógu há til að þau þyrftu aldrei raunverulega að standa við stóru orðin. HR-samfélagið sá til þess að svo varð ekki.Rúmlega 1,2 milljón króna er frábær niðurstaða. En árangurinn verður ekki aðeins mældur í krónum. Hann birtist einnig í þátttökunni, samtölunum, samheldninni og þeirri sterku tilfinningu að við getum haft raunveruleg áhrif þegar við tökum höndum saman.

Frábærlega heppnuð Góðgerðarvika SFHR | SFHR