Sleppa í efni
Allar fréttir

Hvar stendur söfnunin?

Söfnunin komin í 340.000 krónur! Góðgerðarvika SFHR fer frábærlega af stað og hafa nú þegar safnast 340.000 krónur fyrir Píeta samtökin.

Hægt er að styrkja hér

Söfnunin komin í 340.000 krónur!

Góðgerðarvika SFHR fer frábærlega af stað og hafa nú þegar safnast 340.000 krónur fyrir Píeta samtökin.

Háskólinn í Reykjavík, Blue Car Rental og Orkuveitan hafa hvert um sig styrkt söfnunina um 100.000 krónur og Samherji hefur lagt henni til um 40.000 krónur. Við færum þessum öflugu styrktaraðilum okkar bestu þakkir fyrir mikilvægan stuðning.

Nú vantar aðeins 30.000 krónur til að fyrsta áskorunin verði virkjuð við 370.000 krónur. Þá fer Tvíund í 24 klukkustunda streymi í Next Level Gaming!

Allir geta tekið þátt og engin upphæð er of lág. Margt smátt gerir eitt stórt og saman getum við safnað enn meira fyrir mikilvægt starf Píeta.

Styrktu söfnunina hér