Sleppa í efni
← Allar fréttir

Ný stjórn SFHR tekur við fyrir skólaárið 2026–2027

Ný stjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík hefur tekið við störfum fyrir skólaárið 2026–2027.

Ný stjórn SFHR skólaárið 2026-27. Efri röð frá vinstri: Steinar Petersen, Rúnar Gauti Gunnarsson, Orri Thor Eggertsson og Atli Hrafn Ólafsson. Í neðri röð frá vinstri eru: Ásdís Jósefsdóttir Linnet, Elín Salka Snorradóttir og Auður Bjarnadóttir.

Ný stjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík hefur tekið við störfum fyrir skólaárið 2026–2027. Stjórnin tók formlega við þann 14. maí og mun á starfsárinu standa vörð um hagsmuni nemenda, efla þjónustu félagsins og stuðla að öflugu og fjölbreyttu félagslífi innan HR.

Stjórn SFHR 2026–2027 skipa:

  • Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti
  • Orri Thor Eggertsson, varaforseti
  • Ásdís Jósefsdóttir Linnet, fjármálastjóri
  • Auður Bjarnadóttir, hagsmuna- og gæðastjóri
  • Atli Hrafn Ólafsson, markaðsstjóri
  • Elín Salka Snorradóttir, samskiptastjóri
  • Steinar Petersen, nefndarsviðsstjóri

Stjórnin starfar í umboði nemenda og gegnir fjölbreyttu hlutverki innan háskólasamfélagsins. Hún kemur sjónarmiðum nemenda á framfæri við stjórnendur HR og aðra hagaðila, vinnur að kennslu- og gæðamálum og veitir nemendum upplýsingar og aðstoð þegar kemur að réttindum, kjörum og daglegu lífi í skólanum.

Á meðal helstu áherslna starfsársins er að styrkja hagsmunagæslu og gera þjónustu SFHR sýnilegri og aðgengilegri. Markmiðið er að nemendur hafi skýra leið til að koma málum á framfæri og fá aðstoð við þau málefni sem snerta nám þeirra og stöðu. Stjórnin mun jafnframt vinna að bættri upplýsingagjöf, auknu samstarfi við aðildarfélög og frekari uppbyggingu stafrænnar þjónustu.

Félagslífið verður áfram stór hluti af starfsemi SFHR. Fram undan eru meðal annars góðgerðarvika, Ólympíuvika, árshátíð SFHR, skíðaferð HR og fjölbreyttir minni viðburðir í samstarfi við aðildarfélög og samstarfsaðila. Áhersla verður lögð á að viðburðir séu aðgengilegir og að sem flestir nemendur finni sér stað í félagslífi skólans.

Ný stjórn hlakkar til starfsársins og hvetur nemendur til að hafa samband, koma hugmyndum á framfæri og taka virkan þátt í starfi stúdentahreyfingarinnar. Skrifstofa SFHR er staðsett í M205 og eru nemendur ávallt velkomnir þangað.

Ný stjórn SFHR tekur við fyrir skólaárið 2026–2027 | SFHR