Sleppa í efni
← Allar fréttir

Orri endurskipaður í stjórn Menntasjóðs námsmanna

Orri Thor Eggertsson, varaforseti og menntasjóðsfulltrúi SFHR, hefur verið endurskipaður í stjórn Menntasjóðs námsmanna (MSNM) til eins árs.

Orri Thor Eggertsson

Menntasjóður námsmanna veitir námsmönnum fjárhagslega aðstoð til náms og er markmið sjóðsins að tryggja þeim sem falla undir lög um sjóðinn jöfn tækifæri til náms, án tillits til efnahags.

Orri tekur sæti í stjórn fyrir hönd nemenda einkarekinna háskóla og er skipaður af Landssamtökum íslenskra stúdenta (LÍS). Auður Bjarnadóttir, hagsmuna- og gæðastjóri SFHR var skipuð sem varamaður hans.

Tíu fulltrúar sitja í stjórn Menntasjóðsins. Fimm þeirra eru skipaðir af ráðuneytum og fimm af hagaðilum. Þrír fulltrúar sitja í stjórn fyrir hönd námsmanna, en auk Orra eiga Stúdentaráð Háskóla Íslands og Samband íslenskra námsmanna erlendis fulltrúa í stjórn. Aðrir fulltrúar hagaðila eru skipaðir af Bandalagi háskólamanna (BHM) og Sambandi íslenskra framhaldsskólanema.

Hlutverk stjórnar Menntasjóðsins er meðal annars að hafa yfirumsjón með starfsemi sjóðsins, úrskurða um vafamál er varða einstaka lánþega og samþykkja úthlutunarreglur námslána.

Sem menntasjóðsfulltrúi SFHR er Orri jafnframt til staðar fyrir nemendur einkarekinna háskóla, þar á meðal nemendur Háskólans í Reykjavík, Listaháskóla Íslands og Háskólans á Bifröst. Hann veitir nemendum ráðgjöf og aðstoð vegna málefna sem tengjast námslánum og Menntasjóði námsmanna.

Nemendur geta haft samband við Orra vegna fyrirspurna um Menntasjóð námsmanna í gegnum netfangið MenntasjodurSFHR@ru.is.