Sleppa í efni
← Allar fréttir

SFHR, HAX og Stubbur undirrita samstarfssamning

Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík, HAX og Stubbur hafa undirritað samstarfssamning fyrir skólaárið 2026–2027. Samstarfið færir nemendum HR sérstök kjör á HAX og einfaldar jafnframt aðgengi að nemendaskírteini og viðburðum SFHR.

Atli Hrafn Ólafsson marakðsstjóri SFHR og Jónas Óli Jónasson eigandi HAX og Stubbs

Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík, HAX og Stubbur hafa undirritað samstarfssamning fyrir skólaárið 2026–2027. Samstarfið færir nemendum HR sérstök kjör á HAX og einfaldar jafnframt aðgengi að nemendaskírteini og viðburðum SFHR.

Nemendur HR fá eftirfarandi sérkjör á HAX gegn framvísun gildu nemendaskírteinis:

  • Lite-bjór á 900 kr. fyrir séropnun og 1.000 kr. eftir hefðbundna opnun.
  • Vodkablöndur og sídera frá birgjum á 1.200 kr. fyrir séropnun og 1.500 kr. eftir hefðbundna opnun.
  • Skot undir 20% áfengismagni á 800 kr. fyrir séropnun og 1.000 kr. eftir hefðbundna opnun.
  • Önnur skot á 1.000 kr. fyrir séropnun og 1.200 kr. eftir hefðbundna opnun.

Kjörin gilda eingöngu fyrir handhafa nemendaskírteinisins. Verð geta tekið breytingum ef innkaupsverð frá birgjum breytist.

Stubbur verður miðlægur vettvangur fyrir stafræn nemendaskírteini SFHR. Þar geta nemendur nálgast skírteinið sitt, nýtt sér viðeigandi fríðindi og fylgst með miðasölu og viðburðum félagsins. Samstarfið auðveldar SFHR jafnframt að halda utan um skráningar og miðasölu á viðburði.

HAX verður einnig einn af viðburðastöðum SFHR yfir skólaárið og verður reglulega boðið upp á viðburði fyrir nemendur þar.

SFHR fagnar samstarfinu og hlakkar til að bjóða nemendum upp á fjölbreytta viðburði og góð sérkjör á komandi misserum.

SFHR, HAX og Stubbur undirrita samstarfssamning | SFHR