Sleppa í efni
← Allar fréttir

SFHR og Innnes gera með sér samstarfssamning

Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík og Innnes hafa undirritað samstarfssamning fyrir skólaárið 2026–2027. Samstarfið er eitt umfangsmesta viðburða- og vörusamstarf SFHR á starfsárinu og mun styðja við fjölbreytt félagslíf, stærri viðburði og starfsemi aðildarfélaga innan HR.

Halldór Ægir Halldórsson markaðsstjóri Innnes og Rúnar Gauti Gunnarsson forseti SFHR

Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík og Innnes hafa undirritað samstarfssamning fyrir skólaárið 2026–2027. Samstarfið er eitt umfangsmesta viðburða- og vörusamstarf SFHR á starfsárinu og mun styðja við fjölbreytt félagslíf, stærri viðburði og starfsemi aðildarfélaga innan HR.

Innnes er eitt stærsta matvöru- og drykkjarfyrirtæki landsins og hefur innan sinna vébanda fjölbreytt vörumerki. Aðkoma fyrirtækisins mun meðal annars felast í vörustuðningi, veitingum og annarri þátttöku í viðburðum SFHR yfir skólaárið.

Nemendur munu verða varir við samstarfið á fjölmörgum viðburðum. Þar má meðal annars nefna nýnemadaga, góðgerðarviku SFHR, Ólympíuviku, Bleika daginn, árshátíð SFHR og skíðaferð HR. Innnes mun einnig koma að minni uppákomum og verkefnum sem fara fram innan skólans.

SFHR fagnar samningnum og hlakkar til samstarfsins við Innnes. Með honum styrkist geta félagsins til að bjóða nemendum upp á öflugt, aðgengilegt og fjölbreytt félagslíf á komandi misserum.

SFHR og Innnes gera með sér samstarfssamning | SFHR