SFHR og Red Bull undirrita samstarfssamning
SFHR og Red Bull undirrituðu á dögunum glænýjan samstarfssamning.

SFHR og Red Bull hafa gert með sér samstarfssamning fyrir starfsárið. Samstarfið mun styðja við viðburði félagsins og opna á nýja vídd í félagslífi nemenda.
Red Bull hefur víðtæka reynslu af samstarfi við stúdentafélög og viðburði og mun sú reynsla nýtast SFHR við að skapa fjölbreytta upplifun fyrir félagsmenn.
Red Bull er eitt þekktasta vörumerki veraldar og er jafnframt þekkt fyrir óhefðbundna viðburði og fjölbreytt verkefni víða um heim.
SFHR fagnar því að fá Red Bull til liðs við félagið og hlakkar til samstarfsins og þeirra verkefna sem fram undan eru á starfsárinu.