SFHR og SHÍ sameinuðu krafta sína í samtali þjóðar
SFHR og Stúdentaráð Háskóla Íslands (SHÍ) sameinuðu krafta sína laugardaginn 10. október og stóðu fyrir samtali í Háskóla Íslands sem hluta af Samtali þjóðarinnar, að frumkvæði forseta Íslands. Markmiðið var að fá fólk til að ræða framtíð Íslands og samfélagið sem við viljum byggja saman.

Boðið var upp á samtal bæði á íslensku og ensku, svo alþjóðlegir nemendur gætu einnig tekið þátt og komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Með samstarfinu lögðu SFHR og SHÍ áherslu á að rödd stúdenta heyrðist og að fjölbreyttur hópur fengi tækifæri til að leggja sitt af mörkum.
Í aðdraganda viðburðarins tók Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR, þátt í undirbúningsfundi með forseta Íslands ásamt formönnum nemendafélaga framhaldsskóla víðs vegar af landinu og fulltrúum háskólasamfélagsins. Þar var rætt hvernig virkja mætti ungt fólk til þátttöku og skapa vettvang fyrir opið og uppbyggilegt samtal.
Tilefnið hafði sérstaka sögulega skírskotun, en í ár eru 40 ár liðin frá leiðtogafundi Ronalds Reagan og Míkhaíls Gorbatsjovs í Höfða árið 1986. Sá fundur minnir á mikilvægi þess að fólk komi saman, hlusti hvert á annað og leiti sameiginlegra leiða fram á við.
SFHR þakkar SHÍ fyrir gott samstarf og öllum þátttakendum fyrir að leggja rödd sína til samtalsins.