Sleppa í efni
English
Allar fréttir

SFHR og Zantino undirrita samstarfsamning

Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík og Zantino undirrituðu í vikunni nýjan samstarfssamning sem færir nemendum HR góð kjör á sérsaumuðum fatnaði.

Viktor Karl Einarsson og Rúnar Gauti Gunnarsson

Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík og Zantino undirrituðu í vikunni nýjan samstarfssamning sem færir nemendum HR góð kjör á sérsaumuðum fatnaði.

Samningurinn veitir nemendum Háskólans í Reykjavík 15% afslátt af sérsaumi hjá Zantino. Fyrirtækið sérhæfir sig í sérsaumuðum jakkafötum og öðrum formlegum klæðnaði, með áherslu á persónulega þjónustu, vönduð vinnubrögð og hágæða efni.

Samstarfið nýtist nemendum meðal annars þegar kemur að útskriftum, atvinnu, formlegum viðburðum og öðrum tilefnum þar sem vandaður klæðnaður skiptir máli. Með því vill SFHR auðvelda nemendum að nálgast sérsniðinn fatnað á betri kjörum. Hægt er að nýta sér afsláttinn með því að sýna nemendaskírteinið við bókun.

SFHR fagnar samstarfinu og hlakkar til að vinna með Zantino á komandi misserum.

SFHR og Zantino undirrita samstarfsamning | SFHR