Sleppa í efni
← Allar fréttir

Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík og Nespresso á Íslandi hafa skrifað undir samstarfssamning

Nespresso sér félaginu og aðildarfélögum þess fyrir kaffi og kaffivélum á skrifstofum þeirra. Þá verða kaffikynningar í Sólinni og gjafaleikir á miðlum SFHR svo eitthvað sé nefnt.

Rúnar Gauti og Kristín Jónasdóttir

Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík og Nespresso á Íslandi hafa skrifað undir samstarfssamning fyrir skólaárið 2026–2027.

Nespresso sér félaginu og aðildarfélögum þess fyrir kaffi og kaffivélum á skrifstofum þeirra. Þá verða kaffikynningar í Sólinni þar sem nemendum verður boðið upp á kaffi án endurgjalds, auk gjafaleikja á miðlum SFHR yfir skólaárið. Nespresso styður jafnframt við blaðaútgáfu félagsins.

Samstarfið byggir á góðum tengslum undanfarinna ára og skapar fleiri tækifæri til að koma saman yfir góðum kaffibolla. SFHR þakkar Nespresso fyrir stuðninginn og hlakkar til áframhaldandi samstarfs!