Sleppa í efni
English
Allar fréttir

Brynja Lóa ráðin kjara- og atvinnulífsfulltrúi SFHR

Í upphafi skólaárs undirrituðu SFHR og Viska - stéttarfélag undir nýjan samstarfssamnings. Hluti af samningnum fól í sér ráðningu kjara- og atvinnulífsfulltrúa á skrifstofu SFHR. Gengið var frá ráðningu í byrjun ágúst og var Brynja Lóa Bjarnþórsdóttir ráðin í starfið.

Brynja er annars árs tölvunarfræðinemi við Háskólann í Reykjavík ásamt því að sinna hlutverki forseta Sys/tra, hagsmunafélags kvenna og kvára við tölvunarfræðideild HR. Hún mun vinna náið með skrifstofu og stjórn SFHR, sem og með Visku, í að efla þekkingu HR-inga á sviði kjara- og réttindamála. Hún mun jafnframt vinna að því að efla tengsl stúdenta við atvinnulífið.

Kjara- og atvinnulífsfulltrúi mun bjóða upp á ráðgjöf til stúdenta ásamt opnum viðtalstímum í vetur. Auk þess mun Brynja skipuleggja ýmsa viðburði sem tengja nemendur HR við atvinnulífið.

„Ég er ótrúlega spennt að takast á við þetta nýja starf sem kjara- og atvinnulífsfulltrúi SFHR á komandi skólaári! Ég hlakka til að vinna að hagsmunum stúdenta, hjálpa þeim að þekkja réttindi sín og vera til staðar þegar þau þurfa aðstoð. Ég er mjög spennt fyrir komandi skólaári og öllu því sem það mun færa okkur og hlakka til að vinna með ykkur kæru stúdentar.“ segir Brynja Lóa, kjara- og atvinnulífsfulltrúi.

Háskólanemar, sem óska eftir þjónustu vegna kjara- og atvinnulífstengdra mála á vinnumarkaði geta haft samband við Brynju í gegnum netfangið kjarafulltruisfhr@ru.is.

„SFHR fagnar ráðningu Brynju í stöðu kjara- og atvinnulífsfulltrúa. Við teljum þessa viðbót við skrifstofu SFHR vera tímabæra og í takt við áherslur félagsins. Við vonum að sú þjónusta sem hún mun sinna nýtist stúdentum vel og muni koma að gagni á þeirra skólagöngu,“ segir Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR.