Sleppa í efni
English
Allar fréttir

Framkvæmdir við Borgarlínu hafnar við HR

Fyrsti áfangi framkvæmda Borgarlínunnar við HR hófst í síðustu viku.

Framkvæmdir standa nú yfir á Nauthólsvegi og hafa þegar haft lítilvæg áhrif á umferð og aðgengi að HR. Vegna vegavinnu hefur hámarkshraði á Nauthólsvegi verið lækkaður í 30 km/klst.

Göngustígnum meðfram Nauthólsvegi, frá Háskólagörðunum að HR, hefur einnig verið lokað tímabundið vegna framkvæmdanna. Gangandi vegfarendur þurfa því að fara hjáleið um Öskjuhlíð til að komast að og frá HR.

Fyrsti áfangi framkvæmdanna stendur yfir til haustsins 2027. Í þessum áfanga verður tveimur nýjum akreinum fyrir Borgarlínuvagna bætt við Nauthólsveg. Jafnframt verður aðstaða fyrir gangandi og hjólandi bætt með fjölgun göngu- og hjólastíga og nýrri lýsingu.

Þrátt fyrir framkvæmdirnar verður akreinum fyrir almenna bílaumferð ekki fækkað og verða þær jafn margar allan framkvæmdatímann og þær eru í dag. Þá verður bílastæðum við HR ekki fækkað í fyrsta áfanga framkvæmdanna.

Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík á í virku og uppbyggilegu samtali við framkvæmdaraðila Borgarlínunnar og Háskólann í Reykjavík vegna framkvæmdanna. SFHR mun áfram leggja áherslu á að raskanir og önnur neikvæð áhrif framkvæmdanna á nemendur HR verði eins lítil og kostur er.

„SFHR fagnar tilkomu Borgarlínunnar við HR og bindur vonir við að hún dragi úr þeim viðvarandi umferðarvanda sem hefur verið við skólann. Við leggjum þó ríka áherslu á að truflunum vegna framkvæmdanna verði haldið í lágmarki og að tilkoma Borgarlínunnar hafi ekki neikvæð áhrif á nemendur sem kjósa að nýta aðra samgöngumáta, til dæmis með fækkun bílastæða,“ segir Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR.