Góðgerðarvika SFHR hefst - stöndum saman fyrir Píeta
Dagana 7.–11. september stendur Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík fyrir Góðgerðarviku SFHR. Markmið vikunnar er að sameina nemendur, starfsfólk og samfélagið allt í kringum HR í einu mikilvægu verkefni: að safna eins miklu og mögulegt er fyrir Píeta samtökin.

Dagana 7.-11. september stendur Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík fyrir Góðgerðarviku SFHR. Markmið vikunnar er að sameina nemendur, starfsfólk og samfélagið allt í kringum HR í einu mikilvægu verkefni: að safna eins miklu og mögulegt er fyrir Píeta samtökin.
Vikan er hluti af Gulum september, árlegu vitundarátaki um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Starf Píeta samtakanna skiptir gríðarlega miklu máli, en samtökin veita einstaklingum í sjálfsvígshættu og aðstandendum þeirra ókeypis stuðning og ráðgjöf.
Allir geta styrkt
Söfnunin fer fram í gegnum Stubb og rennur allur ágóði til Píeta samtakanna. Það þarf ekki háa upphæð til að hafa áhrif en hver króna skiptir máli og margt smátt gerir eitt stórt.
Hægt er að leggja söfnuninni lið með því að:
- Styrkja söfnunina beint í gegnum Stubb.
- Skanna QR-kóðann sem fylgir kynningarefni vikunnar.
- Taka þátt í viðburðum vikunnar
Söfnunin er opin öllum, ekki aðeins nemendum og starfsfólki HR. Við hvetjum því allt HR-samfélagið til að dreifa boðskapnum sem víðast.
Dagskrá góðgerðarvikunnar
Mánudagur – Góðgerðarvikan hefst
Vikan verður formlega sett af stað í HR og SFHR býður upp á gular veitingar. Jafnframt hefst miðasala á Októberfest í Sólinni.
Þriðjudagur – Partýbingó
Anton Berg heldur partýbingó í Sólinni. Bingóspjaldið kostar 500 krónur og rennur upphæðin til Píeta samtakanna.
Miðvikudagur – Fatauppboð
Freyr Eyjólfsson heldur fatauppboð í Sólinni þar sem hægt verður að næla sér í áhugaverðar flíkur og styrkja gott málefni um leið. Allur ágóði af uppboðinu rennur til Píeta samtakanna.
Fimmtudagur – Skemmtiskokk um HR
Boðið verður upp á skemmtiskokk um umhverfi HR. Þátttökugjaldið er 1.000 krónur og rennur óskipt til Píeta samtakanna. Atlas nemendafélag sér um upphitun og eru þátttakendur hvattir til að mæta í gulu.
Föstudagur – Lukkuhjól og fjöldatafl
Góðgerðarvikunni lýkur með fjörugum föstudegi í Sólinni. Þar verður lukkuhjól með vinningum og fleiri uppákomur. Þá mun Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari í skák, halda fjöldatafl þar sem gestir fá tækifæri til að etja kappi við hann.
Áskoranirnar stækka með söfnuninni
Fjölmargir einstaklingar, nemendafélög og ráð innan HR hafa heitið því að framkvæma skemmtilegar og krefjandi áskoranir þegar ákveðnum áföngum í söfnuninni verður náð:
- 370.000 kr. – Tvíund fer í 24 klukkustunda streymi í Next Level Gaming.
- 400.000 kr. – Kristín aflitar augabrúnirnar sínar.
- 425.000 kr. – Pragma heldur HBT-hóptíma með Viktoríu Helgadóttur kl. 20:30 á miðvikudeginum í Kringlunni.
- 450.000 kr. – Brynjólfur, Dagur og Maya fara í spraytan.
- 475.000 kr. – Ingibjörg fær sér gat í augabrúnina.
- 500.000 kr. – Pragma tekur að sér sérstaka sólarhringsáskorun.
- 525.000 kr. – Valli í Atlas mætir í skólann klæddur sem „Hvar er Valli?“
- 550.000 kr. – Rúnar og Orri eyða 24 klukkustundum í HR.
- 600.000 kr. – Lögrétta fer í tíma í Háskóla Íslands.
- 650.000 kr. – Tryggvi Þór gengur í skólann frá Áslandinu í Hafnarfirði.
- 700.000 kr. – Atlas verður í sundi frá opnun til lokunar.
- 750.000 kr. – Tjörvi fær sér „Guð blessi Technis“ húðflúr.
- 800.000 kr. – Arent og Birgir hlaupa hálfmaraþon handjárnaðir saman.
- 850.000 kr. – Markaðsráð keyrir hringinn í kringum landið á 24 klukkustundum.
- 900.000 kr. – Ari, Atli og Steinar fara tvö maraþon í sólinni.
- 950.000 kr. – Böðvar fær sér SFHR-húðflúr.
- 1.000.000 kr. – Ýmir og Veigar synda yfir í Kársnesið.
- 1.000.000 kr. – Ragnhildur rektor og Bryndís aðstoðarrektor sigla á kajak í skólann frá Kársnesinu.
Framkvæmd áskorananna verður kynnt nánar á miðlum SFHR eftir því sem söfnunin færist nær hverju markmiði.
Saman gerum við gott betra
Góðgerðarvikan snýst ekki aðeins um hversu há lokatalan verður. Hún snýst einnig um að vekja athygli á mikilvægi geðræktar, styðja við lífsnauðsynlegt starf Píeta samtakanna og minna hvert annað á að enginn á að þurfa að takast einn á við erfiða tíma.
Við hvetjum alla nemendur, starfsfólk, fjölskyldur, vini og samstarfsaðila HR til að leggja sitt af mörkum. Hvort sem styrkurinn er stór eða smár hjálpar hann okkur að færast nær næsta áfanga – og getur um leið haft raunveruleg áhrif.
Styrktu Góðgerðarviku SFHR hér
Margt smátt gerir eitt stórt. Saman gerum við gott betra!