Ný stjórn BN tekin til starfa
Ný stjórn Byggingafélags námsmanna (BN) hefur tekið til starfa.

Þrír fulltrúar Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík (SFHR) eiga sæti í nýrri stjórn félagsins, þar á meðal nýkjörinn varaformaður stjórnar.
Byggingafélag námsmanna er sjálfseignarstofnun sem stýrt er af Stúdentafélagi HR, Stúdentaráði Háskóla Íslands, Stúdentaráði Listaháskóla Íslands og Nemendafélagi Tækniskólans. Félagið byggir og rekur um 900 stúdentaíbúðir fyrir aðildarfélög sín.
Þrír fulltrúar SFHR í stjórn
Fulltrúar SFHR sem hlutu kjör í stjórn BN eru Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR, Orri Thor Eggertsson, varaforseti SFHR, og Magnús Már Gunnlaugsson, fyrrverandi forseti SFHR. Magnús Már var jafnframt kjörinn varaformaður stjórnar.
Arent Orri J. Claessen, fyrrverandi forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, og Kjartan Helgi Guðmundsson, varaforseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, hlutu einnig kjör í stjórn. Arent Orri var kjörinn stjórnarformaður.
Aukin áhersla á hagsmuni leigjenda
Fulltrúar SFHR hyggjast beita sér af auknum krafti fyrir hagsmunum félagsmanna SFHR innan Byggingafélags námsmanna. Á næstunni verður jafnframt lögð aukin áhersla á samtal við leigjendur á stúdentagörðunum með það að markmiði að sjónarmið þeirra og reynsla skili sér með skýrari hætti inn í starf félagsins.