SFHR fundar með borgarstjóra vegna Borgarlínuframkvæmda við HR
Fulltrúar Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík funduðu með Hildi Björnsdóttur borgarstjóra vegna fyrirhugaðra Borgarlínuframkvæmda í nágrenni Háskólans í Reykjavík.

Fulltrúar Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík funduðu með Hildi Björnsdóttur borgarstjóra vegna fyrirhugaðra Borgarlínuframkvæmda í nágrenni Háskólans í Reykjavík. Á fundinum kom SFHR á framfæri sjónarmiðum nemenda og lagði áherslu á að áhrif framkvæmdanna á nám og daglegt líf í skólanum yrðu eins lítil og mögulegt er.
Framkvæmdirnar munu hafa áhrif á umferð, aðkomu og bílastæði við HR. SFHR lagði því sérstaka áherslu á gott aðgengi að skólanum fyrir nemendur, óháð ferðamáta, og að öruggar göngu- og hjólaleiðir verði tryggðar á framkvæmdartímanum.
Einnig var rætt um mögulegt rask vegna hávaða og framkvæmda í næsta nágrenni kennslurýma. SFHR ítrekaði mikilvægi þess að skipulag framkvæmdanna tæki mið af starfsemi skólans, sérstaklega á prófatímum og öðrum álagstímum annarinnar.
Skýr og tímanleg upplýsingagjöf til nemenda var meðal helstu áhersluatriða fundarins. Mikilvægt er að upplýsingar um lokanir, breyttar akstursleiðir, áhrif á bílastæði og aðrar tímabundnar breytingar berist nemendum með góðum fyrirvara.
Fundurinn markaði upphaf áframhaldandi samtals SFHR við Reykjavíkurborg og aðra aðila sem koma að framkvæmdunum. SFHR mun fylgjast náið með framvindunni, miðla upplýsingum til nemenda og halda áfram að gæta hagsmuna þeirra á framkvæmdartímanum.