Atlas
Íþróttafræði

Atlas er nemendafélag íþróttafræðinema við Háskólann í Reykjavík. Félagið hefur það að markmiði að standa vörð um hagsmuni nemenda, skapa skemmtilegt og hvetjandi samfélag og efla samstöðu innan hópsins. Markmið Atlas er að gera námið bæði innihaldsríkt, skemmtilegt og um leið skapa ógleymanlegar minningar fyrir nemendur.
Með fjölbreyttum viðburðum og skemmtilegum uppákomum stuðlar Atlas að samhug, sterkum tengslum og jákvæðri háskólamenningu. Stærsti og vinsælasti viðburður Atlas er Árshátíðin, sem hefst á Gullboltanum. Í hádeginu mætast 1., 2. og 3. ár keppa sín á milli í ýmsum íþróttagreinum. Um kvöldið heldur gleðin áfram með skemmtilegum leikjum, góðum mat og partýi fram eftir kvöldi.
Viltu kynna þér Atlas betur? Hafðu samband við okkur eða fylgstu með á samfélagsmiðlum okkar til að fá nýjustu fréttir og upplýsingar um komandi viðburði.





